Grunnnámskeið

Deila:   
Grunnnámskeiðið er það námskeið sem er bæði fyrir hvolpa og eldri hunda. Mælum með að byrja sem fyrst með hvolpa. Þeir geta byrjað frá ca 10 vikna hjá okkur á grunnnámskeið (9 vikna í kríla). Við erum með sal sem við þrífum og sótthreinsum reglulega og allir fá sitt eigið svæði að vinna á.
Allar tegundir hafa gott af því að fara á námskeið hjá okkur, bæði smáhunda- og stórhundategundir. Allir hundar fá sitt rými til að vinna á með sínu fólki. Hundarnir fá ekki að heilsa eða leika við hvern annan nema allir vilja.

Kennt er með jákvæðum aðferðum sem byggjast á nýjustu rannsóknum um atferli hunda.

Öll fjölskyldan er velkomin með á námskeiðið.

Á námskeiðinu lærir þú meðal annars:
- að lesa merkjamál hunda, hvernig þeir tjá sig við okkur og við aðra hunda. Hvað er eðlilegur leikur og hvað er það ekki.
- að þekkja stresseinkenni, hvað stressar og hvernig þú getur komið í veg fyrir stress.
- inn á hvernig hundar læra, hvernig þeir lesa okkur, sem sagt atferli hunda.
- að vinna með hundinum þínum svo honum finnist skemmtilegast í heimi að vinna með þér.
- hvernig þú styrkir jákvæða hegðun og hvernig þú kemur í veg fyrir óæskilega hegðun.
- að nota klikker (innifalinn) sem þjálfunartæki og lærir að nota lokka, móta og grípa aðferðirnar.
- Þú gætir hreinlega kynnst hundinum þínum upp á nýtt

Á námskeiðinu kennir þú hundinum þínum:
- að hlusta á fólkið sitt, bæði þig og aðra í fjölskyldunni sem vilja vera með og þjálfa hundinn.
- að gera þessar grunnæfingar sem eru nauðsynlegar til að hversdagslífið verði þægilegt.
- að slappa af í áreiti! Það er svo mikilvægt að hundurinn geti slappað af þó það sé gaman og þó það séu aðrir hundar nálægt honum.
- að vera í áreiti og geta samt sem áður hlustað og gert æfingar.
- að læra að læra, hundar sem hafa aldrei lært neitt þurfa sérstaklega að æfa heilann sinn í að læra, það er hægt að kenna gömlum hundi að sitja svo að segja.
- að láta hluti vera eða bíða eftir lausnarorði. Sumt er alltaf bannað, það lærir hundurinn án þess að við þurfum stöðugt að segja bannorðið. Aðrir hlutir sem er meira óljóst hvort má eða ekki, þar lærir hann á bannorð.
- að flaðra ekki upp á fólk.
- að sýna kurteisishegðun við ýmislegt. Sem dæmi að í stað þess að væla/gelta/krafsa/glefsa eða haga sér á annan átt illa þegar hann „vill eitthvað“ þá lærir hann að vera rólegur og biðja fallega um „leyfi til að fá“.
- að nota dót sem verðlaun og þá að geta gefið þér dótið þegar þú biður um það.
- að labba fallega í taumgöngu.
- að sjálfur koma inn við hæl og labba þar.

Námskeiðið er í 6 vikur, tvisvar í viku.
Uppbygging er 12 verkleg skipti + 5 fyrirlestrar á netinu sem þið horfið á vikulega á meðan námskeiðinu stendur. Hver fyrirlestur er ca 1 klst langur.

Fyrirlestur 1: Merkjamál og stress 1.hluti.
Fyrirlestur 2: Umhverfisþjálfun, innkall 1 og óæskileg hegðun hvernig styrkja eigi góða hegðun frekar.
Fyrirlestur 3: Merkjamál og stress 2 hluti.
Fyrirlestur 4: Gelt og gestakoma.
Fyrirlestur 5: Innkall 2, svefn og fleira

Grunnnámskeið

Staða: Nýtt
Verð: 45.000 kr.

hundaakademian | Kópavogur | 200

Notandi síðan: 17.maí 2023